Byggðasafnið óskar eftir jólaskrauti

nóv 9, 2022

Leynist gamalt jólaskraut heima hjá þér? Langar þig til að þitt jólaskraut verði varðveitt á safni? Byggðasafn Árnesinga óskar eftir gömlu skrauti frá íbúum Árnessýslu, bæði til að færa inn í safneign en einnig til að geta notað sem jólaskraut í safnahúsunum yfir jólin.

Við erum ekki eingöngu að falast eftir afar gömlu jólaskrauti því margt áhugavert og heillandi skraut frá 20. öld gæti leynst hjá fólki sem þætti spennandi á safni. Við biðjum því fólk sem er að taka til í skrautinu sínu og hikar við að henda einhverju að endilega að hugsa til safnsins. Hver veit nema eitthvað af því geti fengið framhaldslíf.

Við verðum með sérstakan móttökudag fyrir jólaskraut laugardaginn 12. nóvember kl. 12 – 16 í varðveisluhúsi safnsins á Búðarstíg 22 á Eyrarbakka. Einnig er hægt að vera í sambandi við okkur á skrifstofutíma safnsins í síma 483 1082 eða í tölvupósti info@byggdasafn.is.

Ragnhildur Elísabet Sigfúsdóttir safnvörður skoðar gamalt jóladagatal frá miðri 20. öld.