Eyrarbakkaljósmyndir Sigurðar kaupmanns

mar 24, 2021

Þann 27. mars kl. 14 opnar sýning á Eyrarbakkaljósmyndum Sigurðar Kristjánssonar kaupmanns á Eyrarbakka. Sýningin er haldin í borðstofu Hússins á Eyrarbakka.

Sigurður Kristjánsson (1896-1977) kaupmaður á Eyrarbakka var áhugaljósmyndari sem tók myndir af sínu nánasta umhverfi hvort sem það var fjölskyldan, heimilið, þorpið eða hátíðarhöld. Athyglisverðar eru ljósmyndir hans af gömlum húsum og staðsetningu þeirra sem gefa einstakt sjónarhorn á Eyrarbakka um miðja 20. öld. Mörg húsanna sem Sigurður fangaði með ljósmyndavél sinni eru nú horfin.

Sýningin  er unnin í samvinnu við eiganda myndanna Jón Sigurðsson fangavörð son ljósmyndarans. Uppbyggingasjóður Suðurlands styrkti sýninguna.

Sýningin stendur til maíloka. Opið verður kl. 14-17 frá 27. mars til 5. apríl. Opið verður helgarnar 10.-11. og 17. og 18. apríl á sama tíma. Sýningin verður einnig opin á menningarhátíðinni Vor í Árborg dagana 22. til 25. apríl. Í maí verður opið kl. 14-17 laugardaga og sunnudaga. Utan þessara tíma verður hægt að skoða safnið og sýninguna eftir samkomulagi.

Fjöldatakmarkanir vegna sóttvarnareglna:

  • Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými eru 20 einstaklingar.
  • Börn fædd 2015 og síðar teljast ekki með í hámarksfjölda.
  • Grímuskylda er fyrir alla fædd 2005 og eldri.
  • Nálægðartakmörk verða tveir metrar á milli ótengdra aðila.
  • Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk er skylt að andlitsgríma verði notuð.
  • Tryggja skal að blöndun einstaklinga verði ekki á milli hólfa, hvorki í inngangi/útgangi, salernisaðstöðu, veitingasölu eða annarri þjónustu og að fyllstu sóttvarnaráðstafana sé gætt.