Í görðum safnsins með Hafsteini Hafliðasyni

maí 25, 2022

Hafsteinn Hafliðason einn fremst garðyrkjumaður landsins heimsækir Eyrarbakka sunnudaginn 29. maí og verður með erindi og leiðsögn við safnið.

Ljósm. Gunnar Jónatansson.

Í borðstofu Hússins stendur nú yfir sýningin Með mold á hnjánum þar sem stiklað er á stóru yfir sögu og þróun garðyrkju í Árnessýslu. Það er þannig kjörið tækifæri til að fá Hafstein til að miðla með sér fróðleik úr heimi garðyrkjunnar.  Hafsteinn hlaut heiðursverðlaun garðyrkjunnar árið 2018. Hann vann lengst af hjá Blómavali en einnig sem garðyrkjustjóri í tveimur sveitarfélögum.  Hafsteinn hefur kennt við Garðyrkjuskóla ríkisins, setið í ritstjórn Garðyrkjuritsins skrifað bækur og greinar og starfað sem sjálfstæður garðyrkjuráðgjafi svo fátt eitt sé nefnt. Nýjasta stórvirki hans er bókin Allt í blóma sem kom út á þessu ári.

Erindi og leiðsögn Hafsteins mun hefjast inni í Húsinu kl. 13.00. Hann mun segja frá blómarækt fyrr og nú og taka létta leiðsögn um garð Hússins og þéttgróinn garð Kirkjubæjar. Heiðurinn af gróðurmiklum garði við Kirkjubæ eiga fyrrum eigendur hússins, Margrét Árnadóttir og Matthías Guðmundsson.  Allir eru velkomnir og ókeypis aðgangur.