Íslandsást í Ameríku

ágú 11, 2012

Hans BFyrirlestur Sunnu í Húsinu

Saga Íslendinga í Norður-Ameríku verður flutt í máli og myndum í Húsinu á Eyrarbakka sunnudaginn 19. ágúst kl. 18. Vestur -Íslendingurinn  og ættfræðingurinn Sunna (Olafson) Furstenau frá Norður-Dakota  í Bandaríkjunum leggur áherslu á sögu Íslendinga í sínu fylki og hvernig samfélagið þar vinnur að því að varðveita menningararfleiðina. Þekktir Íslendingar þaðan eru Stefán G. Stefánsson, Vilhjálmur Stefánsson, K. N. Júlíus, sr. Páll Þorláksson og sr. Friðrik Bergmann að ógleymdum kaupmannssyninum sr. Hans Baagöe Thorgrímsen sem ólst upp í Húsinu á Eyrarbakka og meðfylgjandi ljósmynd er af.

Sunna er á hringferð um landið og mun flytja fyrirlestur sinn á tólf stöðum. Fjölskylda hennar kom frá Sauðárkróki, Akureyri og Langanesi á árunum 1882 og síðar. Ásamt fullu starfi sem ættfræðingur er Sunna bandarískur fulltrúiÞjóðræknisfélags Íslendinga, en félagið vinnur að því að efla tengsl við fólk af íslenskum ættum í Norður-Ameríku. Systurfélag Þjóðræknisfélagsins er The Icelandic National League of North Americasem Sunna er varaformaður í. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu hennarwww.rootstotrees.com

Í Húsinu gefst fólki einstakt tækifæri til að hitta stórfróða manneskju um Íslendinga í Vesturheimi, eitthvað sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Fyrirlesturinn  hefst kl. 18 og er á ensku. Aðgangseyrir er enginn og kaffiveitingar í boði Byggðasafns Árnesinga.

Sunna Pam Furstenau

Sunna