Kjóllinn – sumarsýning Byggðasafns Árnesinga

maí 30, 2017

Sumarsýning Kjóllinn opnar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka annan í hvítasunnu mánudaginn 5. júní.  Á sýningunni má sjá Kjóllinn AÐALMYNDlitríka kjóla úr safneign í samspili við kjóla frá safngestum og er öllum frjálst og velkomið að lána kjólinn sinn á sýninguna. Kjóllinn má vera gamall eða nýr. Úr safneign verða sýndir ólíkir kjólar en í forgrunni verða kjólar Helgu Guðjónsdóttur og Guðfinnu Hannesdóttur sem eru báðar fæddar snemma á 20. öld þegar nútímalegur lífsstíll var að hefja innreið sína.

Opnunin verður kl. 16.00 og aðeins síðar eða kl. 16.30 munu tvær fróðar konur Hildur Hákonardóttir, listamaður með meiru og Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur koma fram.  Þær ætla að taka létt hugarflug fyrir okkur aftur í tímann þegar kjóllinn þótti ógn við þjóðlegan klæðaburð. En sú var tíðin að eldri kynslóðin fann veruleg að því þegar „glysið“ við útlendan búning lokkaði ungar konur.

Allir eru velkomnir á opnum og léttar veitingar í boði.  Safnið er opið alla daga frá 11-18 fram til 30. september eða eftir samkomulagi fyrir hópa.