Lokahelgi Hafsjós – Oceanus á Eyrarbakka

sep 28, 2022

  • Teboð með hænum og listasmiðja –

Safnið kveður hina viðamiklu listasýningu Hafsjó – Oceanus nú um helgina með örlitlum töfrum. Á laugardag bjóðum við gestum í kúmenkaffi inni í borðstofu Hússins í samveru með listaverki Hafdísar Brands „Teboð“ og á sunnudag verður kóresk listasmiðja opin fyrir gesti.  Listamaðurinn Sung Baeg frá Suður Kóreu kenndi okkur í sumar að þrykkja með bleki á tau og við ætlum að feta í fótspor hans.

Listasýningin Hafsjór – Oceanus er afrakstur vinnu þeirra 20 listamanna sem tóku þátt í samnefndri listahátíð  í sumar. Sýningarstjóri er listakonan Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir og listafólkið kom frá Nepal, Suður Kóreu, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu, Mauritius, Indlandi, Litháen, Póllandi, Frakklandi og Íslandi.  Sýningin teygir sig um öll húsakynni byggðasafnsins og umhverfi þess og er sjón sögu ríkari. 

Verið öll velkomin. Safnið verður opið um helgina kl. 13 – 17 og aðgangur ókeypis.

Þessa sömu helgi hefst Menningarmánuðurinn október og verður margt spennandi á dagskrá hjá safninu.