Rjómabúið á Baugsstöðum opnar

jún 23, 2012

rjomabu innaSkammt austan Stokkseyrar er eina fallegustu  perlu íslenskrar safnaflóru að finna, Rjómabúið á Baugsstöðum. Það er opið um helgar í júlií og ágúst.

Rjómabúið tók til starfa árið 1905 og var starfrækt til 1952 lengst allra rjómabúa hér á landi.  Á 8. áratug síðustu aldar var það  gert að safni með upprunalegum tækjum og tólum. Byggingin var friðuð með ráðherraákvörðun að tillögu Húsafriðunarnefndar á aldarafmæli búsins árið 2005.

Það verður enginn svikinn af heimsókn í Rjómabúið á Baugsstöðum.  Í júlí og ágúst er opið í rjómabúinu  kl. 13-18 á laugardögum og sunnudögum og hefst sumaropnunin síðasta dag júnímánaðar eða 30. júní.   Á öðrum tímum er hægt að fá að skoða Rjómabúið eftir samkomulagi sjá nánar hér:  https://byggdasafn.is/onnur-sofn/rjomabuid-a-baugsstodum/