Hafsjór – dagskrá

jún 10, 2022

Laugardaginn og sunnudaginn 11.-12. júní komandi helgi er komið að lokapunkti Alþjóðlegu listahátíðarinnar Hafsjós/Oceanus við Húsið á Eyrarbakka. Opnaðar verða sýningar sem standa fram á haust í ólíkum rýmum safnsins. Dansgjörningar, tónlist og fleira verða um helgina. Sjón er sögu ríkari. Frítt er á safnið báða daga. Sjá nánar hér fyrir neðan.

Byggðasafn Árnesinga og listakonan Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir standa að hátíðinni sem styrkt er af Uppbyggingasjóði Suðurlands og fjölmörgum fyrirtækjum. Listamennirnir eru alls 20 talsins frá 12 löndum. Þeir hafa dvalið í mánuð á Eyrarbakka og unnið list sína úr umhverfinu.

Dagskrá Hafsjór

11. júní

13.00 Opnun með viðhöfn og leiðsögn um sýningarsvæðið. Listamenn sem koma fram eru Im Tae Woong, Gio Ju, Jaime Martínez og Samantha Claire Zaccarie.

14.00  Tóngjörningur í fjárhúsinu með Anil Subba Sound.

14.00  “VESPERO” dansgjörningur um þrönga ganga Hússins – Maruska Marulyn Ronchi. (flutt tvisvar í röð)

15.00  “Who we are?”. Dáleiðandi gjörningur með Udeya Vir Singh við höggmyndir hans.

15.30  Söngur og dans með Im Tae Woong og Giu Ju við gamla fjósið.

16.00  Gjörningur með Sung Baeg, Anil Subba, Gio Ju and Jaime Martínez í dökku stóru skemmunni á horni Túngötu og Bakarísstígs.

13.00 – 16.00 Stöðugar leiðsagnir, töfrandi dans og tónar.

12. júní  

12.00 Örgjörningur með Jaeyun Baesia Heo Jeong, Sung Baeg og Ástu Guðmundsdóttur á horni Búðarstígs og Hafnarbrúar.

12.30 “Dansað við hafið” – listamennirnir Maruska Marulyn Ronchi og Anil Subba sameina kraftana sína í fjörunni.

13.30 “My Memory in Iceland 052022 / Nature + Humans” – Sung Baeg fremur gjörning við listaverk sitt á baklóð varðveisluhússins á Búðarstíg 22.

14.00 – 15.00 Töfrandi hreyfingar í safninu; gestir eru boðnir velkomnir í för með listamönnunum Gio Ju, Im Tae Woong, Heru Fjord og Maruska Marulyn Ronchi

14.30 “Who we are?” Dáleiðandi gjörningur með Udeya Vir Singh við höggmyndir hans.

15.30 – 16.30  Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson heimsækir hátíðina.

16.00  “Sisyfos, story of a fisherman”  – dansgjörningur Jaime Martínez  með Gio Ju.

14.00 -16.00 Stöðugar leiðsagnir, töfrandi dans og tónar.

(Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur á Eyrarbakka þennan sama dag.)

Listamenn sem taka þátt í hátíðinni eru:

Alda Rose Cartwright Ísland

Anil Subba Nepal

Auður Hildur Hákonardóttir Ísland

Ásta Guðmundsdóttir Ísland

Christine Gisla Ísland

Diana Radaviciute Litháen

Gio Ju Suður Kórea

Hafdís Brands Ísland

Hera Fjord Ísland

Im Tae Woong Suður Kórea

Jaeyun Baesia Heo Jeong Suður Kórea

Jaime Martínez Spánn

Kristine Schnappenburg Þýskaland

Manou Soobhany Mauritius

Maruska Marulyn Ronchi Ítalía

Piotr Zamojski Pólland

Samantha Claire Zaccarie Frakkland

Saulius Valius Litháen

Stefan Hermannsson Ísland

Sung Baeg Suður Kórea

Udeya Vir Singh Indland

Kuei-Chih Lee Taiwan

Lua Rivera Mexíkó

Tei Kobayashi Japan

Takuya Komaba Japan