Hjallurinn endurgerður

sep 8, 2014

Um þessar mundir er unnið að endurgerð hjallsins við Húsið á Eyrarbakka.  Hann er núna færður í upprunalega gerð með pappa sem ystu klæðningu á veggjum í stað bárujárns og meIMG_2911ð rimlum eins og upphaflega var. Hjallurinn var upprunalega reistur í tíð Kaupfélagsins Heklu árin 1919-1925 en svo var honum breytt talsvert að talið er árin 1932-1935. Verkið vinnur Jón Karl Ragnarsson húsasmíðameistari fyrir Þjóðminjasafn Íslands.