Húsið á Eyrarbakka 250 ára

júl 15, 2015

3.8.2005 006Í sumar eru 250 ár liðin síðan Húsið á Eyrarbakka var byggt. Af því tilefni boðar Byggðasafn Árnesinga til hátíðarsamkomu í Húsinu þann 9. ágúst næstkomandi og hefst kl. 14. Húsið var byggt af Jens Lassen kaupmanni á Eyrarbakka sem íbúðarhús fyrir sig og starfsmenn sína og var kaupmannssetur til 1927. Byggðasafn Árnesinga hefur haft það til sýnis undanfarin 20 ár. Nánar verður sagt frá hátíðinni þegar nær dregur.

Meðfylgjandi mynd er fra samkomu sem haldin var í Húsinu á Eyrarbakka 3. ágúst 2005 þegar haldið var upp á að 10 ár voru liðin frá opnun Hússins og 240 ára afmælis þess.