Japanskur meistari heimsækir Eyrarbakka

jún 15, 2018

MushmaruMushimaru Fujieda,  listamaður og butoh meistari frá Japan heimsækir Eyrarbakka í næstu viku. Hann býður uppá námskeið tvö kvöld og endar heimsókn sína á því að sýna umhverfis Húsið á Jónsmessugleðinni laugardaginn 23. júní kl. 13.30. Nokkuð sem enginn ætti að missa af. Að gjörningi loknum verður boðið uppá seyði og söl í hjallinum norðan við safnið. Hluti sumarsýningarinnar Marþræðir er í hjallinum og kynjaverur hanga þar í loftbitum.  Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir listamaður og sýningahöfundur sumarsýningar á heiðurinn af komu Mushimaru´s og Uppbyggingarsjóður Suðurlands styrkti viðburðinn.

Námskeiðið sjálft verður fimmtudags- og föstudagskvöld  21. og 22. júní á Stað á Eyrarbakka og kallast “A lecture on Natural Physical Poetry – movement as one’s own breathing rhythm. Námskeiðið sem Mushimaru hefur þróað, felst í að rækta náttúrulegan dans fyrir hvern og einn með hreyfingu sem tengist öndun. Mushimaru hefur haldið námskeið í meira en 20 ár í Japan, Evrópu, Suður Kóreu, New York, Kína, Taiwan, Hong Kong, Filipseyjum og Indlandi. Hann leggur áherslu á aðferð sem gerir hverjum og einum kleift að upplifa einlæga leikgleði barnsins í sjálfum sér. Aðferðin hefur einnig slakandi áhrif á huga og líkama. Það er í boði að taka þátt annað eða bæði kvöldin og hvort kvöld kostar 6000,-  Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið er hjá Ástu  asta@astaclothes.is

 

(ljósmynd Ásta V. Guðmundsdóttir)