Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka 24. júní 2017 – kjólakaffi í Húsinu

jún 20, 2017

Að venju verður haldin Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka þegar sólin er sem hæst á lofti laugardaginn 24. júní 2017.  Dagskráin er fjölbreytt og meðal atburða í söfnunum er Kjólakaffi að hætti Auðbjargar Guðmundsdóttur í Húsinu um morguninn  og almennur söngur undir stjórn Heimis Guðmundssonar um kvöldið.

Dagskrá:

9:00 Fánar dregnir að húni við upphaf 19. Jónsmessuhátíðarinnar

Eyrbekkingar flagga íslenska fánanum eða Bakkafánanum og ganga frá skreytingum í hverfalitum og bjóða gesti velkomna. Björgunarsv. Björg býður upp á ókeypis veiði í Ölfusá fyrir landi Eyrarbakka.

9:00–21:00 Verslunin Bakki við Eyrargötu

Verslunin opin allan daginn og fram á kvöld. Börnin fá ís um miðbik dagsins. Óvænt uppákoma um miðjan dag.

9:30–11:00 Morgunstund í Hallskoti

Skógræktarfélag Eyrarbakka tekur á móti gestum og býður upp á hressingu.

10:00–11:30 Kjólakaffi með Aubý í Húsinu

Gestir mæta í kjólum eða kjólfötum og þiggja frúarkaffi í stássstofu með fyrrum húsfreyju Hússins, Auðbjörgu Guðmundsdóttur.

10:30–17:00 Laugabúð við Eyrargötu

Einstakur bókamarkaður í kjallaranum – mikið úrval nýrra og gamalla bóka á frábæru tilboðsverði. Spjall í búðinni allan daginn.

11:00–22:00 Rauða húsið á Eyrarbakka

Rauða húsið er opið allan daginn og þar er boðið upp á ókeypis eftirrétt með öllum aðalréttum á matseðli.

11:00–18:00 Söfnin á Eyrarbakka

Opið í Byggðasafni Árnesinga í Húsinu, Sjóminjasafninu og Kirkjubæ.   Í borðstofu Hússins er sýningin Kjólar.                  Ókeypis aðgangur.

11::00 Unga kynslóðin skemmtir sér

Brúðubíllinn kemur í heimsókn að Sjóminjasafninu og Lilli litli heilsar upp á alla gömlu góðu vinina sína á Eyrarbakka. Boðið upp á hressingu.

Hestar teymdir undir börnum á Garðstúninu í boði Bakkahesta.

12:00 BMX BRÓS

BMX BRÓS sýna listir sínar á BMX hjólum við Sjóminjasafnið.

12:00-14:00 Bubbluboltar

Björgunarsveitin Björg verður með bubblubolta á Garðstúninu.

12:00–14:00 Heimboð í Garðshorn

Árleg Jónsmessusúpa og rabarbaragrautur í Garðshorni í boði húsráðenda Elínbjargar og Vigfúsar. Allir velkomnir.

13:00–14:30 Diskótek fyrir yngri kynslóðina

DJ Sveppz sér um diskótek við Sjóminjasafnið. Nú taka allir fram dansskóna.

14:00–16:00 Tekið á móti gestum

Guðlaug Einarsdóttir og Jón Matthíasson á Túngötu 41 bjóða gestum heim til sín í spjall.

Esther Helga Guðmundsdóttir í Einarshöfn 4 – Jakobsbænum opnar hús sitt fyrir gestum og gangandi.

16:00-18:00 Marþari

Ásta Villa Guðmundsdóttir á Kaldbak fremur gjörning á Vesturbryggjunni.

16:00-17:00 Fuglasöngur og annað kvak

Valgeir Guðjónsson skemmtir ungum og öldnum með fuglasöng og öðru kvaki í Eyrarbakkakirkju.

20:15–21:30 Blandaði Bakkakórinn

Heimir Guðmundsson leikur undir almennan söng í stássstofu Hússins. Húsið opnað kl. 20 – þeir sem fyrstir koma fá sæti!

22:00 Jónsmessubrenna í fjörunni vestan við Eyrarbakkaþorp

Eiríkur Már Rúnarsson ávarpar gesti og hið frábæra Bakkaband heldur svo uppi fjörinu fram eftir kvöldi.

23:00 Rauða húsið

Kjallarinn opinn og Grétar í Sólvangi ætlar að syngja og spila.

Tjaldsvæðið vestan þorpsins er opið – öll þægindi og nóg pláss.
Jónsmessuhátíðin er styrkt af Sveitarfélaginu Árborg, Versluninni Bakka, MS, Guðnabakaríi, Krás, Árhúsum Hellu, Bakkahestum, Ungmennafélagi Eyrarbakka og Björgunarsveitinni Björg.
„Elskulegi Eyrarbakki!“

IMG_3748