Kirkjubær endurbyggður

apr 26, 2013

kirkjubaer

Um þessar mundir vinna smiðirnir Guðmundur og Gísli Kristjánssynir ásamt Ingólfi Hjálmarssyni málara að viðgerðum á Kirkjubæ.  Skipt verður um bárujárn á þaki og hliðum og alla glugga og hurðir og húsið lagfært þar sem þess er þörf.  Viðgerðir innanhús taka síðan við en verið er að færa húsið í upprunalega gerð.   Kirkjubær stendur skammt vestan við Húsið á Eyrarbakka . Byggðasafn Árnesinga keypti húsið í árslok 2011 og verður það nýtt til sýningahalds þar sem ætlunin er að lýsa heimili alþýðufólks á milli stríða. Ráðgjafi við verkið er Jon Nordsteien arkitekt.  Meðfylgjandi ljósmynd var tekin í dag.