Larry Spotted Crow Mann í Húsinu á Eyrarbakka

júl 23, 2014

LarryLarry Spotted Crow Mann er af ættflokki Nipmuc Indjána í Massachusetts í Bandaríkjunum. Hann er rithöfundur, skáld, sögumaður og trommari. Hann heldur fyrirlestra hvaðanæfa í heiminum, þar sem hann hvetur fólks til meðvitundar um stöðu Indjána og náttúrunnar. Hann er einnig þekkur fyrir að hjálpa ungum Indjánum til betra lífs eftir áfengis- og vímuefnavanda.

Larry gaf nýverið út bókina “The Mourning Road to Thanksgiving”, sem er saga sem segir af raunverulegum vanda Indjána í núverandi menningarheimi Bandaríkjanna.

Hann er nú á ferðalagi til Íslands og Grænlands til að kynna bók sína.  Hann á stutt stopp á Íslandi en mun halda 2 sagnakvöld á meðan dvöl hans stendur.

Í Húsinu á Eyrarbakka, Sunnudagskvöldið 27. júlí kl 19:30. Með honum á Eyrarbakka munu einnig koma fram dúettinn UniJon, sem munu leika tónlist af nýútkominni plötu sinni Morning Rain.

Enginn aðgangseyrir – en frjáls framlög eru vel þegin.

Þetta er fullkomið tækifæri til að eiga notalega kvöldstund í návist þessa áhugaverða listamanns.

Nánari upplýsingar um Larry Spotted Crow Mann má nálgast á heimasíðu hans: http://www.whisperingbasket.com

Nánari upplýsingar um viðburðinn og ferðir hans á Íslandi má nálgast hjá Unni Arndísar á uni@uni.is eða í síma 696-5867.