Missir – sumarsýning í Húsinu á Eyrarbakka

jún 11, 2021

Persónulegir hlutir verða gjarnan dýrgripir eftirlifenda þegar ástvinur deyr. Þannig geyma látlausir hlutir líkt og pappírsbátur, herðasjal og sparibaukur oft mun dýpri sögu en virðist í fyrstu. Löngu seinna rata slíkir gripir á safn; kannski þegar tíminn hefur grætt sárin. Á sumarsýningunni Missir í borðstofu Hússins á Eyrarbakka er ljósinu beint að þessum fallega sið og tilfinningagildi gripanna heiðrað.

Sögutími sýningarinnar færir gesti aftur á fyrri hluta 20. aldar þegar ekki þótti sjálfsagt að allir næðu háum aldri. Mikil breyting hefur orðið á viðhorfi samfélagsins síðan þá. Dauðinn var fólki mun nálægari áður fyrr, en sorgin var borin í hljóði. Viðsnúningur hefur orðið svo nú er talið mikilvægt og eðlilegt að tjá sig um missi en dauðinn sjálfur virðist fólki fjarlægari. 

Byggðasafn Árnesinga býður alla velkomna á opnun sýningarinnar í Húsinu á Eyrarbakka kl. 16.00 sunnudaginn 20. júní. Safnið er opið alla daga 11-18 fram til 15. september og eftir samkomulagi á öðrum tímum.

Sýningin er styrkt af Safnasjóði og Uppbyggingasjóði Suðurlands. Sýningarstjóri er Linda Ásdísardóttir.

Myndin er af Margréti Aldísi Árnadóttur sem dó átta og hálfsárs gömul árið 1909. Gersemar hennar eru meðal gripa á sumarsýningunni Missir í Húsinu á Eyrarbakka.