Sjóminjasafnið á Eyrarbakka

jan 19, 2016

???????????????????????????????

Byggðasafn Árnesinga sér um rekstur Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka. Í safninu eru munir frá Eyrarbakka með áherslu á sjósókn, iðnað og félags- og menningarsögu síðustu 120 ára. Stærsti og merkasti safngripurinn er áraskipið Farsæll, sem Steinn Guðmundsson skipasmiður á Eyrarbakka smíðaði fyrir Pál Grímsson, útvegsbónda í Nesi í Selvogi. Steinn var helsti skipasmiður á Suðurlandi í lok 19. aldar og byrjun 20. aldar og smíðaði hann yfir 400 skip og báta á sínum starfsferli. Farsæll er tólfróinn teinæringur með sérstöku lagi, sem Steinn innleiddi á báta sína og kennt hefur verið við hann og nefnt Steinslag. Það bátalag tók mið af aðstæðum í brimverstöðvunum á Suðurlandi, Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn og Selvogi, og þótti henta mjög vel þar.

Þá er í eigu Sjóminjasafnsins beitningaskúr byggður 1925 á blómaskeiði vélbátaútgerðar á Eyrarbakka. Allsérstæð klæðning er á vesturhlið skúrsins, þar sem lítill árabátur hefur verið tekinn og flattur út og notaður sem klæðning á vegginn.

Safnið varðveitir að auki fimm báta í geymslu sinni. Um er að ræða tvo báta sem notaðir voru við sel- og laxveiðar í Ölfusá og tveir ferjubátar úr Þjórsá, einnig mótorbátur smíðaður af Helga Þorvaldssyni á Gamla-Hrauni.

Safnið varðveitir jafnframt gott ljósmyndasafn.

Sjóminjasafnið á Eyrarbakka er opið alla daga 15. maí – 15. september kl. 11-18 alla daga vikunnar. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sameiginlegur aðgangseyrir er að söfnunum á Eyrarbakka. Sjá nánar www.husid.com