Opið á Vori í Árborg

apr 25, 2014

OLYMPUS DIGITAL CAMERAByggðasafn Árnesinga tekur sem áður þátt í menningarhátíðinni Vori í Árborg. Opið er í Húsinu og Sjóminjasafninu kl. 13-17 dagana 24.-27. apríl.  Jafnframt opið hús í nýuppgerðum Kirkjubæ.  Ratleikur er á laugardegi. Ókeypis aðgangur er að söfnunum þessa daga. Meðfylgjandi ljósmynd er af Kirkjubæ sem iðnaðarmenn hafa verið að gera upp síðustu mánuði. Þar verður sýning á híbýli alþýðufólks milli stríða. Stefnt er að opna Kirkjubæ til sýningar á næstu mánðum.