Polskie Święta Wielkiej Nocy – Pólskir páskar í Húsinu á Eyrarbakka

mar 20, 2018

heimasíða pólskir páskarPáskasýning safnsins er tileinkuð pólskum páskum.  Í borðstofu Hússins verður dregið fram það helsta sem fylgir páskahefðum í Póllandi en þar fagna flestir samkvæmt kaþólskum sið. Á sýningunni má sjá myndskreytt egg sem kallast pisanki, matarkörfu með páskamat sem er blessaður í kirkjunni á páskadagsmorgun, litríka handgerðir vendi sem eru tákn fyrir pálmagreinar og ýmislegt fleira.  Á páskum er föstunni að ljúka og tákn um vorkomu er víða sjáanlegur í páskasiðunum. Sýningin verður svo sannarlega í þeim anda.  Monika Figlarska hefur aðstoðað safnið við gerð sýningarinnar.

Sýningin opnar laugardaginn 24. mars og verður opin alla daga kl. 13-17  fram yfir páska. Síðasti sýningardagur verður sem sagt annar í páskum. Frítt verður í safnið á meðan á sýningu stendur. Allir velkomnir. Zapraszamy wszystkich serdecznie.