Sjóminjasafnið „rampað upp“

ágú 5, 2022

Eitthundraðasti rampurinn á landsbyggðinni verður tekinn í notkun við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka þriðjudaginn 9. ágúst klukkan 14:00.  Öllum er boðið á viðburðinn en sérstakir gestir verða leikskólabörn frá Strandheimum á Eyrarbakka og Stokkseyri og eldri borgarar. Innviðaráðherra og bæjarstjóri Árborgar verða með stuttar ræður. Aron Freyr Jónsson mun svo vígja rampinn við Sjóminjasafnið.

Verkefnið, Römpum upp Ísland hófst formlega með vígslu á fyrsta rampinum þann 23. maí s.l. í Hveragerði. Þriðjudaginn 9. ágúst er komið að 100 rampinum sem staðsettur verður við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka.

Tilgangur verkefnisins „Römpum upp Ísland“ er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, stofnunum, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins. Stofnfé sjóðsins eru framlög einstaklinga, fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vilja leggja sitt af mörkum til  að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra um allt land.

Léttar veitingar verða í boði og eru allir sérstaklega hvattir til að mæta og fagna þessum áfanga og tímamótum í verkefninu, Römpum upp Ísland við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka þriðjudaginn 9. ágúst kl. 14.00.