Skáldastund og jólasýning

nóv 26, 2015

 

OLYMPUS DIGITAL CAMERAFjórir rithöfundar lesa úr verkum sínum í Húsinu á Eyrarbakka laugardaginn 5. desember kl. 16.00. Anna Rósa Róbertsdóttir fjallar um bókina Vörubílstjórar á vegum úti en þar er rakin saga Mjölnis, félags vörubílstjóra. Bókin er ríkulega myndskreytt og myndir af bílstórum að störfum verður í forgrunni.  Einar Már Guðmundsson færir síðan gesti inn í allt aðra veröld í skáldsögunni Hundadagar sem fjallar öðrum þræði um ævintýri Jörunds hundadagakonungs.  Eftir kaffihlé mun Eyrbekkingurinn  Guðmundur Brynjólfsson les úr sinni spaugilegu hörmungarsögu Líkavöku. Glæpasögudrottningin Yrsa Sigurðardóttir slær svo botninn í þessa beittu dagskrá með upplestri úr spennitryllinum Sogið. Jólasýningin safnsins verður opin sama dag frá 14.00 – 16.00. Frítt er inn á safnið og heitt á könnunni, verið velkomin.